Gengisvísitalan er nú 145,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og stendur krónan því styrkst um 1% frá opinberri skráningu krónunnar í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 145,22 stig en var í gær 146,73 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Nú stendur Evran í 113,5 krónum, Bandaríkjadalur í 72,2 krónum og Sterlingspund í 142,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,3 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum