Gengisvísitalan var 150,8 stig í lok dags samkvæmt vef Landsbankans og styrktist krónan því um 2,9% frá opinberri skráningu krónunnar í gær. Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 151,2 stig en var í gær 155,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Í lok dags stóð Evran í 117,6 krónum, Bandaríkjadalur í 75,1 krónum og Sterlingspund í 149,2 krónum.

Þá stóð svissneskur franki í 74,2 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.