Gengisvísitalan var 149,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 3,21% frá opnun markaða í morgun en 3,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,7 stig en var í gær 154,8 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 116,2 krónum, Bandaríkjadalur í 74,5 krónum og Sterlingspundið í 145,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,3 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.