Gengisvísitalan er nú 157,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,9% frá opnun í morgun og um 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,7 stig en var á föstudag 158,8 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,2 krónum, Evran í 122,8 krónum og Sterlingspundið í 154,9 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,2 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,5 krónum.