Gengisvísitalan var í lok dags 148 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og styrktist krónan því um 1,2% frá lokun markaða á miðvikudag (lokað var fyrir markaði í gær) en 1,4% frá opinberu gengi á miðvikudag.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148 stig en var á miðvikudag 150 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 115,3 krónum, Bandaríkjadalur í 73,6 krónum og Sterlingspund í 146 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,4 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.