Gengisvísitalan er nú 152,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,1% frá lokun markaða á föstudag en 0,8% frá opinberu gengi s.l. föstudag.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,5 stig en var á föstudag 153,7 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 119,7 krónum, Bandaríkjadalur í 75,4 krónum og Sterlingspund í 149,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,5 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum