Gengisvísitalan var við lok markaða 146,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,6% frá lokun markaða á föstudag en 0,7% frá opinberu gengi á föstudaginn.
Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,2 stig en var á föstudag 148 stig.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.
Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 114,6 krónum, Bandaríkjadalur í 73,2 krónum og Sterlingspund í 146,1 krónu.
Þá stendur svissneskur franki í 70,8 krónum og japanskt jen í 0,7 krónum.