Gengisvísitalan var 155,3 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,55% frá opnun markaða í morgun en 2,2% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær. Krónan styrktist verulega undir lok dags í gær eða rúmlega 1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154,8 stig en var í gær 158,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 120,8 krónum, Bandaríkjadalur í 78 krónum og Sterlingspundið í 151,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum.