Gengisvísitalan var 178,9 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð en miðað er við lokagengi á mörkuðum.

Krónan styrktist skyndilega á síðustu mínútum opnunar gjaldeyrismarkaða en hafði fram eftir degi veikst um allt að 1%. Þannig fór markaðsgildi gengisvístölunnar í einu stökki úr 183 stigum, sem hefði verið met við lokun, í 178,9 stig.

Velta á gjaldeyrismarkaði var um 36 milljarðar í dag sem þykir í minna lagi.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 182,2 stig sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi en var í gær 180 stig – sem þá var hæsta opinbera gengi frá upphafi. Þetta er í áttunda skipti í þessum mánuði sem gildi opinberrar gengisvísitölunnar slær met.

Krónan veiktist um 3% í gær.

Krónan hefur nú veikst um 1,7% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 93,8 krónum, Evran í 137,2 krónum og Sterlingspundið í 173,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 86 krónum, japanskt jen í 0,88 krónum og danska krónan í 18,4 krónum.