Gengisvísitalan var 146,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og styrktist krónan því um 0,7% frá opnun markaða í morgun en 1,6% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,3 stig en var í gær 148,4 stig.

Lítil hreyfing var á gengi krónunnar fram eftir degi en undir lok dag styrktist hún skyndilega eins og áður sagði.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 114,1 krónu, Bandaríkjadalur í 72,6 krónum og Sterlingspundið í 143,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,3 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.