Gengisvísitalan var 158,9 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,2 stig en var í gær 159,9 stig.

Krónan hefur þó veikst um 0,1% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 83,9 krónum, Evran í 121,9 krónum og Sterlingspundið í 149,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,7 krónum, japanskt jen í 0,77 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.