Gengisvísitalan var 159,4 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,6% frá opnun í morgun en 1 % frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,7 stig en var í gær 160,9 stig.

Krónan veiktist um 0,8% í gær en hafði þó fyrr um daginn veikst um 1,2%. Við opnun markaða í morgun tók hún hins vegar að styrkjast á ný og hafði um tíma í dag styrkst um tæpt prósent þannig að aðeins dró úr styrkingu hennar undir lok dags.

Krónan hefur nú styrkst um 4,1% á einni viku sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 78,7 krónum, Evran í 124,8 krónum og Sterlingspundið í 156,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,5 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,7 krónum.