Gengisvísitalan var 152,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,6% frá opnun markaða í morgun en 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,3 stig en var í gær 154 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 118,6 krónum, Bandaríkjadalur í 77 krónum og Sterlingspundið í 150,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,8 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum