Gengisvísitalan var 152,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,2% frá opnun í morgun en 1,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 152,3 stig en var í gær 155,1 stig.

Krónan hóf að styrkjast strax í morgun og hafði um stuttan tíma í dag styrkst um allt að 1,3% en hún veiktist í gær um 0,7%.

Krónan hefur nú styrkst um 4,8% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 75,5 krónum, Evran í 118,8 krónum og Sterlingspundið í 149,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,3 krónum, japanskt jen í 0,70 krónum og danska krónan í 15,9 krónum.