Gengisvísitalan var 162,4 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,5% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 163,8 stig en var í gær 159,7stig.

Opinbert gengi Seðlabankans í dag hefur ekki verið hærra í tæp sjö ár en í gær náði veiking krónunnar algjöru hámarki þegar gengisvísitalan var 164,5 stig við lok markaða og hafði krónan því veikst um 3,8% frá opnun markaða í gærmorgun.

Krónan hefur því veikst um 4,5% á einni viku sé miðað við opinbert gengi Seðlabankans s.l. miðvikudag og lokagengi á mörkuðum í dag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 126,9 krónum, Bandaríkjadalur í 81,9 krónum og Sterlingspundið í 161,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 78,3 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum.