Gengisvísitalan var 159,3 stig við lok gjaldeyrismarkaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 2,1% frá opnun í morgun en 3,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,4 stig en var á föstudag 164,6 stig.

Dagurinn í dag er síðasti dagur 2. ársfjórðungs en samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans hefur krónan veikst um 3,2% á öðrum ársfjórðungi en 24,3% frá áramótum.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79 krónum, Evran í 124,3 krónum og Sterlingspundið í 157,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,4 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,7 krónum.