Gengisvísitalan var 161,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 4% frá opnun í morgun en um 4,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Lokagildi dagsins í dag miðast þó við markaðsgengi.

Opinbert gengi var í morgun 165,9 stig en var í gær 168,9 stig sem er hæsta opinbera gengið frá upphafi.

Krónan veiktist nokkuð í fyrradag eða um 3% og veiking hennar hélt áfram í gærmorgun. Hins vegar styrktist hún seinni part gærdagsins og hafði við lok markaða styrkst um 0,2%. Krónan hefur nú veikst um 0,9% síðustu fimm daga þannig að mikil veiking hennar á mánudag og í gærmorgun er að mestu gengin til baka.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Evran nú í 125,3 krónum, Bandaríkjadalur í 80,5 krónum og Sterlingspundið í 158,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,2 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.