Gengisvísitalan var 158,2 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist fram undir degi og hafði veikst um 0,2% um tíma en tók viðsnúning nú undir lok dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,9 stig en var í gær 158,7 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,9% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,8 krónum, Evran í 121,6 krónum og Sterlingspundið í 153,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.