Gengisvísitalan var 167,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 2,1% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 168,9 stig og slær úr met gærdagsins þegar opinbert gengi var 164,3 stig.

Krónan veiktist um 3% á mörkuðum í gær og hafði um tíma í dag veikst um 0,5% frá opnun í morgun. Undir lok dags tók hún hins vegar að styrkjast aftur og hafði sem fyrr segir styrkst um 0,2% við lok gjaldeyrismarkaða.

Krónan hefur engu að síður veikst um rúm 6% á einni viku.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Evran nú í 130,6 krónum, Bandaríkjadalur í 83,8 krónum og Sterlingspundið í 165,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 80,6 krónum, japanskt jen í 0,78 krónum og danska krónan í 17,5 krónum.