Gengisvísitalan er nú 159,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,3 % frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,2 stig en var í gær 159,9 stig.

Krónan hefur þó veikst um 0,% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 84,3 krónum, Evran í 122,1 krónu og Sterlingspundið í 150,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,8 krónum, japanskt jen í 0,77 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.