Gengisvísitalan var við lok markaða 156,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,7% frá opnun í morgun en 1,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Lokagengi dagsins í dag miðast þó við markaðsgengi. Opinbert gengi var í morgun 159,2 stig en var í gær 158,7 stig.

Krónan bæði veiktist og styrktist í morgun en tók að rísa nokkuð eftir hádegi og hafði sem fyrr segir styrkst um 1,7% í lok dags.

Krónan styrktist um 0,6% í gær en hefur nú styrkst um 3,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 77,8 krónum, Evran í 122,3 krónum og Sterlingspundið í 154,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,8 krónum, japanskt jen í 0,73 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.