Gengisvísitalan er nú 161,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,2% frá opnun í morgun en 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,9 stig en var í gær 160,4 stig.

Krónan styrktist um 2,1% í gær en hefur nú styrkst um 4,8% á einni viku sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,6 krónum, Evran í 125,9 krónum og Sterlingspundið í 159,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 78,5 krónum, japanskt jen í 0,76 krónum og danska krónan í 16,9 krónum.