Gengisvísitalan er nú 148,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá opnun markaða í morgun en 1,6% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,7 stig en var í gær 146,4 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,6 krónu, Bandaríkjadalur í 73,9 krónum og Sterlingspundið í 145 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71 krónu og japanskt jen í 0,71 krónu.