Gengisvísitalan er nú 151,4 stig og hefur hækkað um 0,58% í morgun. Opinber skráning var í morgun 151,3 stig samkvæmt vef Seðlabanka Íslands.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengi Seðlabankans.

Þegar þetta er skrifað, kl. 11:15 stendur Evran í 118,1 krónum, dollarinn 74,7 krónum og sterlingspundið í 150,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,2 krónum og japanskt jen í 0,75 krónum.