Gengisvísitalan var 161,5 stig við lok gjaldeyrismarkaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá opnun markaða í morgun en 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hóf að veikjast strax við opnun í morgun en tók þó mesta kippinn niður á við seinni part dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 161 stig en var í gær 160,4 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,5% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 85,9 krónum, Evran í 123,3 krónum og Sterlingspundið í 152,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,5 krónum, japanskt jen í 0,80 krónum og danska krónan í 16,5 krónum.