Gengisvísitalan var 150,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá lok markaða í gær en 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 149,15 stig en var í gær 148,3 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 117,1 krónu, Bandaríkjadalur í 75,2 krónum og Sterlingspundið í 149,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,1 krónu og japanskt jen í 0,72%.