Gengisvísitalan er nú 154,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,75% frá opnun markaða í morgun en 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154,2 stig var í gær 153,3 stig.

Krónan hefur nú veikst síðustu daga eða frá 26. maí og nemur veiking hennar síðan þá 5,4%.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,9 krónum, Bandaríkjadalur í 77,5 krónum og Sterlingspundið í 151,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,5 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum