Gengisvísitalan var 175,9 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis sem er hæsta gildi gengisvísitölunnar frá upphafi.

Þannig hefur krónan því veikst um 2,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær. Þetta er þriðji dagurinn í röð þar sem gildi gengisvísitölunnar slær nýtt met en hún fór í 178,5 stig innan dags í dag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar við lok markaða s.l. mánuð samkvæmt markaðsgengi Mentis. Þá var gildi gengisvísitölunnar við lokun markaða í gær einnig það hæsta sem sést hefur, 169,9 stig.

Opinbert gengi var í morgun 172,7 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var í gær 171,5 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.

Krónan hefur nú veikst um 5,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 94,6 krónum, Evran í 133,6 krónum og Sterlingspundið í 169,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 84,4 krónum, japanskt jen í 0,90 krónum og danska krónan í 17,9 krónum.