Gengisvísitalan er nú 164,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,2% frá opnun í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 164,6 stig en var í gær 162,4 stig.

Krónan hefur verið á nokkurri sveiflu í vikunni en stendur þó í stað sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi frá því á mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,5 krónum, Evran í 128,3 krónum, og Sterlingspundið í 161,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,8 krónum, japanskt jen í 0,77 krónum og danska krónan í 17,2 krónum