Gengisvísitalan er nú 157,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,7% frá opnun í morgun en 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 157,2 stig var í gær 155,9 stig.

Fari svo að vikan endi svona hefur krónan veikst um 3% frá byrjun vikunnar sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi frá því á mánudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 122,1 krónu, Bandaríkjadalur í 79,7 krónum og Sterlingspundið í 154,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,8 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum.