Gengisvísitalan er nú 169,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan veikst um 1,1% á þeim rúmlega 20 mínútum sem gjaldeyrismarkaðir hafa verið opnir.

Krónan hafði þó fyrir nokkrum mínútum lækkað um 1,8% en gengisvísitalan fór í 170,5 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 90,5 krónum, Evran í 129,9 krónu og Sterlingspundið í 162,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 81,1 krónu, japanskt jen í 0,86 krónum og danska krónan í 17,3 krónum.