Gengisvísitalan er nú 152,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 0,3% frá opinberu gengi gærdagsins.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,9 stig var í gær 152,5 stig.
Krónan hefur ekki hreyfst mikið síðustu tvo daga en hún hefur þó veikst um 0,5% frá því á föstudag.
Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,1 krónu, Bandaríkjadalur í 76,8 krónum og Sterlingspundið í 150,3 krónum.
Þá stendur svissneskur franki í 74 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.