Gengisvísitalan er nú  149,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans á miðvikudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 149,8 stig en var á miðvikudag 149,15 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 116,3 krónum, Bandaríkjadalur í 75,2 krónum og Sterlingspundið í 149,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,7 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.