Evrur
Evrur
© Getty Images (Getty)
Gengi íslensku krónunnar gagnvart evru lækkaði í gær, á sama tíma og evran veiktist gagnvart flestum myntum. Ekki var um mikla hreyfingu að ræða en að mati greiningar Íslandsbanka er það ekki góðs viti að krónan sé að veikjast á sama tíma og gjaldeyrisinnflæði vegna ferðamanna er með sem mestu móti.

Evran fór úr 165,19 krónum í 165,65 krónur í gær. Á sama tíma veiktist gengi hennar gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum.