Gengisvísitalan er nú 165,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,1% frá opnun í morgun en um 2,4% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 164,3 stig en var á föstudag 161,2 stig.

Þetta er hæsta opinbera gengi Seðlabankans á þessari öld en fyrra met er þó aðeins síðan á fimmtudag síðastliðinn þegar opinbera gengisvísitalan var 163,8 stig.

Sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi í byrjun árs hefur krónan veikst um 26,5%.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 128,1 krónu, Bandaríkjadalur í 82,5 krónum og Sterlingspundið í 162,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 79,1 krónu og japanskt jen í 0,77 krónum