Krónan hefur veikst um 2,4% það sem af er degi og er 129,9 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Gerist það í kjölfar þess að matfyrirtækið Standard & Poors greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í A+ úr AA- og fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt í A-1 úr A-1+.

Um leið var lánshæfiseinkunnin fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum lækkuð í AA úr AA+ en einkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum var staðfest A-1+. Horfur eru stöðugar.