Gengisvísitalan er nú 159,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,9% frá opnun markaða í morgun en 3,9% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Undir lok dags í gær veiktist krónan mikið og var gengisvísitalan um 158 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 158 stig en var í gær 153,3 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 123,3 krónum, Bandaríkjadalur í 79,7 krónum og Sterlingspundið í 155,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,6 krónum og japanskt jen í 0,77 krónum.