Gengisvísitalan var 148,2 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,2 frá opnun markaða í morgun en 1,4% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Lítil hreyfing var á krónunni síðustu tvo daga en hún veiktist þú um 1% undir lok dags í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 147,9 stig var í gær 146,1 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,5 krónum, Bandaríkjadalur í 73,9 krónum og Sterlingspundið í 146,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,2 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.