Gengisvísitalan er nú 148,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,9% frá lokun markaða í gær en 0,7% frá opinberu gengi gærdagsins.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,3 stig en var í gær 147,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 115,55 krónum, Bandaríkjadalur í 74,2 krónum og Sterlingspund í 146,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,5 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.