Gengisvísitalan er nú 153,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því veikst um 0,8% í dag og um 2% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,7 stig en var í gær 150,63 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 120,3 krónum, Bandaríkjadalur í 75,8 krónum og Sterlingspund í 151,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,9 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum