Gengisvísitalan er nú 157,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,7 stig en var í gær 156,7 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 1,5% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82 krónum, Evran í 120,8 krónum og Sterlingspundið í 151,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,8 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,2 krónum.