Gengisvísitalan var 178,4 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en aftur á móti styrkst um  2,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð en miðað er við lokagengi á mörkuðum. Krónan styrktist skyndilega á síðustu mínútum opnunar gjaldeyrismarkaða í gær og hefur nú styrkst um 0,3% sé miðað við lokagengi í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 177,4 stig en var í gær 182,2 stig – sem er hæsta opinbera gengi frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 0,1% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 93,5 krónum, Evran í 137 krónum og Sterlingspundið í 172 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 85,7 krónum, japanskt jen í 0,88 krónum og danska krónan í 18,4 krónum.