Gengisvísitalan var 159,2 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8 frá opnun í morgun en 1,3% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 157,3 stig var á föstudag 157,2 stig.

Krónan styrktist fram undir hádegi í dag og hafði um kl. 11 styrkst um 0,4%. Hins vegar tók hún að veikjast nokkuð eftir hádegi og hafði sem fyrr segir veikst um 0,8% við lok markaða.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 124 krónum, Bandaríkjadalur í 80,1 krónu og Sterlingspundið í 157,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,8 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum.