Gengisvísitalan er nú  152,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því nokkuð hratt undir lok dags eða um 1,4% frá opnun markaða í morgun.

Krónan hefur þá veikst um 2,3% frá opinberu gengi Seðlabankans á miðvikudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 149,8 stig en var á miðvikudag 149,15 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 118,5 krónum, Bandaríkjadalur í 76,7 krónum og Sterlingspundið í 151,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,7 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.