Gengisvísitalan var við lok markaða 149,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því veikst um 1,4% frá lokun markaða í gær en 1,3% frá opinberu gengi gærdagsins.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,3 stig en var í gær 147,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 116,3 krónum, Bandaríkjadalur í 74,5 krónum og Sterlingspund í 147 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,1 krónu og japanskt jen í 0,72 krónum.