Gengisvísitalan var 157,8 við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en stendur í stað frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Krónan hafði um tíma í dag þó styrkst um 0,3%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,2 stig en var á föstudag 157,7 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 0,6 % síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,1 krónu, Evran í 121 krónu og Sterlingspundið í 153,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,9 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,2 krónum.