Gengisvísitalan var 152,7 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,4% frá opnun í morgun 0,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist snögglega seinni part eftir að hafa styrkst um 0,2% í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 151,9 stig en var í gær 152,3 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 2,6% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 75,7 krónum, Evran í 119,4 krónum og Sterlingspundið í 149,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,6 krónum, japanskt jen í 0,71 krónu og danska krónan í 16 krónum.