Krónan veiktist hratt undir lok dags og var Gengisvísitalan 152,5 stig við lok gjaldeyrismarkaða samkvæmt Markaðsvakt Mentís. Krónan veikist þannig um 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans í morgun.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 150,63 stig en í gær 151 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans. Lokagildi hennar í dag miðast þó við lok markaða í dag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 119,7 krónum, Bandaríkjadalur í 75,1 krónu og Sterlingspund í 149,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum