Gengisvísitalan var 159,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,4 % frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,9 stig en var á föstudag 158,9 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,7% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 84 krónum, Evran í 122,7 krónum og Sterlingspundið í 151,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,2 krónum, japanskt jen í 0,78 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.