Gengisvísitalan var 159 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,7% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,2 stig en var í gær 157,2 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,1 % síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,6 krónum, Evran í 121,9 krónum og Sterlingspundið í 154 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.